Bangkok.. City of angels in the land of smiles!
29.02.2012 - 02.03.2012
35 °C
Sawasdee !!!
Vegna tíma - og áhugaleysis þá höfum við ekki náð að henda inn bloggi fyrren nú. Ironic!!!
Það er virkilega hægt að gleyma sér hérna í Bangkok.... en það er eins gott að gleyma sér ekki um of þar sem það getur meira og minna kostað þig lífið, sérstaklega þegar það kemur að umferðinni - óðar skellinöðrur og vespur á hverju horni, að flýta sér einhvert, og það að þú gætir mögulega staðið í vegi fyrir ökumanni er algjörlega aukaatriði.
Apríl þakkar guði fyrir að hafa Elínu sér við hönd, þar sem hún er sem innfædd, þjótandi um götunar á vespunni grænu eins og ekkert sé auðveldara. Það er líka Elínu að þakka að við höfum eytt minni pening en ella, þar sem hún er með prúttið alveg á sínum snærum!
Það er greinilegt að við erum ekki í Reykjavík lengur - hérna bjarga sér allir algjörlega allir sjálfir og gaman að sjá hvað við höfum það virkilega gott á klakanum. Apríl klórar sér í hausnum yfir örygginu hérna í umferðinni, þar sem það er óskrifuð regla að allir mega keyra eins og þeir vilja (BÓKSTAFLEGA) og troða eins mörgu fólki, stóru sem smáu á litlu vespurnar - án öryggistóla!!!! Það er magnað að fólki skuli taka börn á öllum aldri, allt niður í nokkurra mánaða á vespu eða skellinöðru eins og ekkert sé sjálfssagðara! Enda er fátt sjálfssagðara í Asíu. Þetta er í lagi, samt er t.d. nekt ALGJÖRT feimnismál!!!
Maturinn hérna hefur algjörlega staðið fyrir sínu, ýmis gómsæti er hægt að fá bókstaflega allstaðar, allt eldað á staðnum og ýmist sett í poka eða stungið á prik sem er algjör snilld! T.d. þá eru allar súpur settar í sterka plastpoka sem er lokað með gúmmíteygju, engin hætta á leka og mjög sjaldgæft að þeir springi og þeir taka lítið pláss og litla fyrirhöfn! Eitthvað Íslendingar ættu að taka sér til fyrirmyndar! Það sést kannski langar leiðir að við söknum íslenska matarins nákvæmlega ekki neitt! Nema Elín fékk craving í Pítsu sökum alvarlegrar þynnku... á háu stigi!
Elín er algjörlega búin að missa sig í mat sem hefur verið Apríl mjög framandi hingað til en hún Elín ætlar að sjá til þess að Apríl borði a.m.k. þrjá spicy rétti fyrir heimför!
En ef það er eitthvað sem mætti fara betur þá er það hitinn hérna! Það er svo virkilega þreytandi að fara í sturtu tvisvar á dag og verða sveittur um LEIÐ og þú labbar út af baðherberginu... Ef þið hafið prófað hot-yoga þá getið þið kannski rétt ímyndað ykkur. 39°hita og svonaaaa... 40% raka? Ekki langt frá því allavegana!
Við höfum meira og minna verið á milljón síðan við komum enda ýmsir hnútar sem þarf að hnýta áður en við leggjum af stað í bakpokaferðalagið. Einnig höfum við líka keypt léttari föt þar sem við tókum svona 4 flíkur á mann með í upphafi... Svo erum við líka búnar að eyða mun meiri pening en við áætluðum í bakpokaferðalagið - Aukaflugin kostuðu hvort um sig 20 á mann og multiple entry visa var mesta rip-off í sögu Suðaustur Asíu = 19 ÞÚSUND FYRIR SKITINN STIMPIL !"#$#"#$ !!!!!! Virkilega sárt! Svo kannski er vert að nefna að það er ÚTÞENNSLA í Thailandi og thailenska bath-ið er mjög sterkt miðað við fyrri tíma. Enda allir á glænýjum bílum og verið að byggja fullt af fancy nýbyggingum... Við veðjum á algjört efnahagslegt hrun innan 5 ára ef þetta heldur áfram svona!
Í gær hittum við vin Elínar, hann Dado sem býr hérna í Bangkok og starfar sem freelance módel hérna í Thailandi. Hann bauð okkur líka í svona svaka fínt BBQ hjá umboðsskrifstofunni sinni þar sem fyrirsætur frá öðrum löndum voru að vinna á samningi hjá ýmsum umboðsskrifstofum í Thailandi. Þarna var enginn yfir 50 kg og enginn undir 173 cm þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig okkur leið í kringum þetta fólk - Alveg virkilega HEILBRIGÐAR!
Við vorum nú nokkuð forvitnar um þennan business og spurðum sitthvað útí þetta glamúrlíf sem mörg okkar halda að þessi business sé. Stelpurnar voru margar hverjar mjög sorgmæddar að sjá og aðrar með kökkinn í hálsinum. Maður sá alveg að þeim greinilega leið ekki vel og fórum því að spyrja hvernig þeim líkaði við Bangkok og starfið sitt og viðbrögðin voru mjög neikvæð. Þessar stúlkur frá 17 ára aldri eru látnar skrifa undir samning og þeim eru settar strangar reglur um útivistartíma og hvað þeim er leyfilegt að gera og hvað ekki. Flestar þeirra eru í castings frá morgni til kvölds alla daga og fá ekkert að skoða sig um í borginni og síðan er þeim liggur við haldið inni í stofufangelsi þar sem þær búa vegna þess að þar er fylgst með þeim með EFTIRLITSMYNDAVÉLUM! Já gott fólk, nei við erum sko ekki að grínast! Virkilega mikil frelsissvipting að okkar mati að dæma. Við vorum allavega mjög sáttar með okkar hlutskipti miðað við þá hörmung sem þessar annars ágætu stelpur voru að segja okkur frá.
Á endanum strolluðum við af stað út á lífið fjögur saman og kíktum á tvo klúbba og dönsuðum og drukkum frítt alla nóttina og skemmtum okkur STÓRKOSTLEGA vel!! Endaðum síðan nóttina ungu á sundspretti á efstu hæð í Apartment Complexi þar sem við stukkum út í svalandi sundlaugina í fötunum og nutum þess að vera ekki að drepast úr hita for once!
Þegar við loksins ákváðum að pilla okkur heim ákváðum að fá okkur "fyllerísmat" í leiðinni sem var OF STERKUR TIL AÐ TELJAST ÆTILEGUR en Apríl og Dado töluðu um að hausinn á þeim væri að springa eftir tvo bita.
Svo er saga að segja frá því að við vorum hálf skjálfandi í taxanum sem var afskaplega ÞÆGILEG tilfinning. Já við erum að meina það...
Við vorum komnar í rúmið rúmlega sex um morguninn og Elín vissi nokkurnveginn að þetta yrði mjög svefnlítill morgun en Apríl vildi sko ekkert hlusta á það fyrr um nóttina að við gætum pottþétt ekki sofið lengur en til 10 vegna þess að herbergið breytist gjörsamlega í einhvern brútal bakaraofn yfir daginn. Elín hafði gjörsamlega rétt fyrir sér þar sem við vöknuðum einmitt klukkan 10 í HOT YOGA hitanum að drepast úr þreytu, þynnku og hvaðeina. Ákváðum að taka daginn rólega og slappa af og vera þunnar í friði sem var oooosom! Förum snemma að sofa í kvöld og síðan fáið þið annað blogg sem fyrst! Það tekur samt í alvöru 7 tíma að skrifa svona fínt blogg sem við vonum að þið hafið nennt að lesa!
Allavegana, komið gott í bili- verðum hérna í nokkra daga í viðbót og síðan er það Chiang Mai!! stay tuned ![]()
Posted by ferdagrjon 02.03.2012 00:04 Archived in Thailand Comments (0)
